Samtalsmeðferð
Áslaug býður uppá samtalsmeðferð og handleiðslu fyrir einstaklinga og pör á Domus Mentis geðheilsustöð. Áslaug er lærður kynlífsráðgjafi auk þess sinnir hún áfallameðferð. Hún hefur starfsleyfi frá Landlæknisembættinu.
Hvernig fer samtalsmeðferð fram?
Einstaklingsmeðferð – miðar að því að frelsa einstaklinginn undan einhverju oki, t.d. áhrifum áfalls, lélegu sjálfsmati eða rangra upplýsinga. Þessir þættir eru algengir orsakaþættir í kynlífsvanda. Í einstaklingsmeðferð er farið yfir nýjar leiðir til að bæta lífsgæði einstaklingsins.
Parameðferð – hugmyndafræðin í parameðferð og kynlífsráðgjöf er að parið vinni saman að lausn vandans til að öðlast aukin lífsgæði. Kynlífsvandi er eðli málsins samkvæmt vandi parsins ekki einstaklingsins. Í kynlífsráðgjöf er unnið að lausnum með samtali og fræðslu í viðtalstímunum. Parið fær heimaverkefni eða æfingar milli tíma.
Algeng vandamál sem unnið er með í kynlífsráðgjöf:
- Minnkuð kynlöngun. Algeng orsök er streita, sambandinu og kynlífinu ekki sinnt til margra ára, kynlífið orði einhæft eða spennan og gleðin farin úr því.
- Risvandamál.
- Fullnægingarvandi. Brátt sáðlát eða seinkuð fullnæging
- Samskiptavandi.
- Sársauki við samfarir.
- Framhjáhald eða trúnaðarbrestur.
Kostnaður
Greitt er fyrir viðtalið á staðnum. Hægt er að greiða með greiðslukorti sé þess óskað. Flest stéttarfélög taka þátt í niðurgreiðslu samtalsmeðferðar.
Ef breyta þarf tíma eða hætta við skal það gert með sólarhrings fyrirvara. Sé afboðað síðar eða ekki mætt í viðtal án afboðunar er rukkað afboðunargjald.