Áslaug Kristjáns
  • Heim
  • Viltu vinna með mér?
    • Samtalsmeðferð
    • Fyrirlestrar
  • Um mig
  • Blogg
  • Hafðu Samband
  • Heim
  • Viltu vinna með mér?
    • Samtalsmeðferð
    • Fyrirlestrar
  • Um mig
  • Blogg
  • Hafðu Samband
Aslaug Kristjans Portrait

Höfundur: Áslaug Kristjáns

November 10, 2026

Gerðu eins og ég segi – skáldsaga

Ég hef verið í ritleyfi undandarið að skrifa nýja bók. Ég gaf ekki upp í fyrstu að næsta bók yrði skáldsaga, að ég væri í raun að söðla um og ekki að skrifa aðra handbók. Í byrjun árs sendi ég handrit inn til bókaútgáfunnar Bjartur/Veröld, með hjartað í buxunum. Viðbrögðin stóðu ekki á sér og útgefandinn vildi fund. Á fundi í febrúar var ákveðið að bókin kæmi út strax í haust. Eftir yfirlestur, góðar ábendingar og lagfæringar var bókin tilbúin í prentun og útgáfu fagnað í október síðast liðnum. Gerðu eins og ég segi fór beint í 2. sæti metsölulista Pennans/Eymundsson í þeirri viku.

Ég hef ítrekað verið spurð í ritleyfinu um hvað ég sé að skrifa. Einfalda svarið er að ég er að skrifa um kynlífsráðgjafa og fólk sem leitar til hennar. „Auðvitað,“ segir fólk við svarinu. Ég er að skrifa um það sem ég þekki. Gerðu eins og ég segi er þó ekki sjálfsævisaga og alls ekki vísun í það sem mér hefur verið sagt í vinnunni. Um allt það er ég bundin trúnaði. Skáldsagan er frá upphafi til enda hugarburður minn, vangaveltur um hvað gæti gerst ef ég léti þetta eða hitt henda sögupersónurnar.

Síðan hef ég verið spurð „og hvernig bók er þetta?“ Svarið við því er aðeins flóknara. Ég hef átt erfitt með að finna bókinni flokk, útgefandinn sagðist glíma við sama vanda í ræðu í útgáfuboðinu. Skáldsagan er bæði spennusaga og ástarsaga en þó hvorugt í hefðbundnum skilningi. Fyrir bókmenntahátíðina Iceland Noir sagði ég hana flokkast sem Domestic Noir. Kannski hef ég skrifað dökka ástarsögu í stað rauðrar?

Ég hef í meira en áratug fengið innsýn í hugsanir og tilfinningar fólks í tengslum við kynlíf og ástina. Alla ævi hef ég auðvitað haft innsýn í eigin hugarheim og tilfinningar líka. Þegar mér var orðið ljóst að öll erum við líkari en við höldum, að sammannlegi þátturinn er stærri en það sem aðskilur okkur, greip mig óvænt löngun til að skrifa skáldskap um fólk í ástarsamböndum. Þegar slíkt hefur hent mig áður hefur reynst vel að fylgja hugmyndinni. Fyrir margt löngu hafði svipað gerst og ég ákvað að verða kynlífsráðgjafi. Hvort ég er nú hætt í því starfi veit ég ekki ennþá, en ég er áfram í ritleyfi og að skrifa næstu bók um kynlífsráðgjafann Karitas.

Gerðu eins og ég segi er saga um það þegar ástin er erfið, þegar hún verður að valdabaráttu, þegar skömm, svik og óuppfylltar þrár búa undir fáguðu yfirborði. Í bókinni leita hjónin Nanna og Baldur til kynlífsráðgjafans Karitasar sem sjálf hefur ekki enn fangað ástina. Sagan fjallar um það sem ég ímyndaði mér að gæti gerst ef fólk felur sjálft sig í nánu sambandi, treystir ekki og sýnir aðeins þá hlið á sér sem það heldur að aðrir vilji sjá.

Ef frásögnin af lífi hjónanna reynist trúverug og lesandanum dettur í hug að atburðirnir hafi í alvöru gerst tókst mér ætlunarverkið.

 

Deila

FacebookTwitterGoogle +Pinterest
  • Next

©2017 | Allur Réttur Áskilinn | ÁSLAUG KRISTJÁNS