Lífið er kynlíf – handbók kynfræðings um langtímasambönd byggir á alþjóðlegum rannsóknum og reynslu minni sem sambands- og kynlífsráðgjafa. Hún er sex kaflar og ég leiði lesendur í gegnum þá eins og ég myndi gera í kynlífsráðgjöf. Ég fer yfir algengustu umkvörtunarefni og æfingar. Í henni eru líka dæmisögur; við fylgjum einu pari í gegnum […]
Blogg
Stefnumót í hádeginu – Vídalínskirkja í beinni Klukkan 12:00 streymum við héðan úr Vídalínskirkju. Áslaug Kristjánsdóttir hjúkrunar-og kynfræðingur mun sitja fyrir svörum. Posted by Vídalínskirkja on Miðvikudagur, 30. september 2020 Hér má horfa á myndband af spjalli okkar Jónu Hrannar Bolladóttur prests í Vídalínskirkju um kynlíf í samböndum.
Fór 1. mars í viðtal hjá Músli á útvarpsstöðinni 101 og ræddi um kynlífsráðgjöf. Hér má hlusta á viðtalið. https://www.visir.is/k/01d984d0-633a-4180-b6ba-109cf5071c94-1551448499741?fbclid=IwAR3LPbMKpBBfG6jWscr-WIwLtd7W6XduqyzhKUXi6B5ABkA_H6_bntPvxyQ
Sérfræðingur í fótbolta og ráðgjafi í sjónvarpinu talaði um það að árangur íslenska landsliðsins í fótbolta undanfarin ár væri að hluta að þakka stórkostlegum fyrirliða liðsins. “Við höfum aldrei átt fyrirliða sem hefur haldið liðinu svona vel sama og þegar hann er ekki með þeim á vellinum gengur þeim verr” sagði hann. Þessi setning hafði […]
Til þess að geta stundað kynlíf og notið þess þarf heilbrigðan líkama. Líffæri sem virka eins og þau eiga að gera, nokkuð heila líkamsparta og huga sem er fær um kynferðislegar hugsanir. Það segir sig því sjálft að ef við viljum halda í kynlífsgetu okkar þá þurfum við að hugsa vel um líkamann. Okkur er […]
Hér má hlusta á viðtal um stefnumótaforrit og ástina sem Þórhildur í Samfélaginu tók við mig í apríl.
Hér má lesa viðtal sem birtist í Brúðarblaði Morgunblaðsins 2018. Einnig má lesa það hér fyrir neðan. Áslaug Kristjánsdóttir starfar sem kynlífsráðgjafi á Domus Mentis, Geðheilsustöð. Hún segir að í aðdraganda giftinga þegar undirbúningurinn er í hámarki ættu brúðhjón að gera með sér samning um hvernig kynlífs þau vilja njóta í lífinu. Brúðkaup eru oftar […]
Rannsóknir á kynhegðun mannsins eru ekki alda gamlar. Kynfræði, fræðin um kynhegðun mannskepnunnar, er ung fræðigrein. Fyrstu rannsóknir kynfræðinga könnuðu hvað gerist líkamlega þegar við stundum kynlíf. Fólk var fengið til þess að koma á tilraunastofur og stunda sjálfsfróun eða kynlíf á meðan lífsmörk þess voru mæld. Þannig öðluðumst við skilning á kynsvörun. Þegar síðasta […]
Hér má hlusta á viðtal um muninn á daðri og kynferðislegri áreitni sem Þórhildur í Samfélaginu á Rás 1 tók við mig á dögunum. http://www.ruv.is/frett/dadur-og-kynferdisleg-areitni-tvennt-olikt
Nýlega fór Standford háskóli í Bandaríkjunum að bjóða uppá viðskiptaáfanga þar sem lesefnið var bók sem fjallar um niðurstöður rannsókna á því hvernig hjónabönd virka. Aðaláherslan í þessum áfanga var á að nemendur lærðu góðar samskiptaleiðir til að láta fyrirtæki blómstra. Eðlilega má velta fyrir sér hvaða erindi bók um árangursrík hjónabönd eigi í viðskiptanámi? […]
Í upphafi árs hafa margir strengt áramótaheit. Nýtt ár er nýtt upphaf. Við erum árinu eldri og vitrari ef allt er eins og best verður á kosið. Það er gott að setja sér markmið en mikilvægara er að þau séu raunhæf og gerð til þess að auðga líf okkar. Því langar mig nú í upphafi […]
Manneskjan er sköpuð þannig að hún vill para sig. Ég held að þessi staðreynd eigi sér tvíþætta skýringu. Í fyrsta lagi viljum við deila lífinu með einhverjum svo við höfum vitni að því sem við gerum. Það gefur lífi okkar vægi þegar aðrir vita hvað við gerum. Í öðru lagi viljum við para okkur til […]
Samkvæmt Esther Perel, sambands- og kynlífsráðgjafa í New York þurfum við aðeins að kunna og nota 7 sagnir til að tala tungumál ástarinnar. Þessar 7 sagnir ástarinnar geta bætt núverandi sambönd eða aukið hæfni í framtíðarsamböndum. Hún heldur því fram að þessar sagnir geti umbreytt kynlífi fólks. Það þarf ekki að æfa þær allar í […]
Við þekkjum öll sögur af hæfileikaríkum elskhugum. Elskhugum sem virðast kunna listina að elskast betur en aðrir. Þeir voru fæddir í þetta hlutverk. Þessar sögur eru yfirleitt skáldskapur og skildi engan undra. Þeir sem vinna með pörum og í kringum kynlíf vita að hæfileikaríkir elskhugar fæddust ekki þannig þeir lærðu þetta. Maður þarf ekki einu […]
Minnkuð kynlöngun karla og kvenna er algengasta ástæða þess að fólk leitar sér aðstoðar kynlífsráðgjafa. Þá vill annar aðilinn meira kynlíf og hinn minna. Þetta veldur togstreitu og algengt er að fólk ætlist til þess að sá sem vill minna taki sig á og samþykki meira. Á undanförnum áratugum hefur kynlöngun kvenna orðið að rannsóknarefni […]